Aðalsíða
Veðurstofa Íslands
Kirkjubæjarkl. : 0°C
Fagurhólsm. : 0°C
Reykjavík : 0°C
Skálafell : 0°C
Aku. Krossnbr. : 0°C
Þingvellir : 0°C
Hveravellir : 0°C
Fagurhólsmýri : 0°C
Rauðinúpur : 0°C
Egilsstaðir : 0°C
Bláfjallaskáli : 0°C
Hjarðarland : 0°C
Ólafsfjörður : 0°C
Kbæjkl. Stjórnars. : 0°C
Vegagerðin
Kjalarnes 01:40 ASA 7  14 °C
Hafnarfjall 01:30 ASA 7  16 °C
Holtavörðuh. 01:40 NNV 6  9 °C
Ennisháls 01:40 NV 4  9 °C
Steingr.fj.heiði 01:40 ANA 5  9 °C
Blönduós 01:40 A 3  10 °C
Vatnsskarð 01:30 NA 2  10 °C
Öxnadalsheiði 01:40 A 3  8 °C
Víkurskarð 01:40 ASA 6  11 °C
Mývatnsöræfi 01:30 SSA 8  10 °C
Fjarðarheiði 01:40 A 8  8 °C
Hvalnes 01:40 N 6  10 °C
Öræfasveit 01:30 NNA 2  14 °C
Við Lómagnúp 01:40 ASA 12  12 °C
Mýrdalssandur 01:40 ANA 9  12 °C
Skálholt 01:30 ANA 5  13 °C
Búrfell 01:00 VNV 15  13 °C
Setur 01:00 S 2  9 °C
Veiðivatnahr. 01:00 ASA 1  9 °C
Jökulheimar 01:00 SSA 9  8 °C
Ingólfsfjall 01:40 ASA 4  13 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland

Smellið á landshluta til að sjá færð og veður.

 

Meira en 50 ára gamall slóði upp hlíðar Æsustaðafells.
Meira en 50 ára gamall slóði upp hlíðar Æsustaðafells.

Nú er nóg komið !!!

Það er í lagi að "skemma" með fótunum en ekki með dekkjum.

Þetta er kornið sem fyllti mælinn!! Á visir.is er grein um utanvegaakstur í Mosfellsbæ sjá hér: http://visir.is/kvartad-vegna-utanvegaaksturs-i-mosfellsbae/article/2010842655751

Fréttin er sennilega fengin af www.mos.is (http://mos.is/Lesafrett/utanvegaakstur-–-reglur-ekki-virtar)

Og hvað er að sjá á þessari mynd sem fylgir greininni? Slóða upp hlíðar Æsustaðafells sem ekinn hefur verið í meira en 50 ár !!! Hann er hvorki betri né verri nú en áður. Þarna uppi er fastmerki í mælingakerfi landsins, steinsteyptur stólpi. Starfsmenn bæjarins (hreppsins í þá tíð) notuðu meðal annars þennan slóða þegar fastmerkið var notað á sínum tíma í mælingavinnu í Mosfellsdal.

Er virkilega hægt að senda hvaða frétt sem er á þessa vefmiðla og þeir éta heimskuna upp, hugsunarlaust?

Nýtt orð hefur verið að festa sig í sessi en það er umhverfisfasisti. Það mun vera einstaklingur sem sér ofsjónum yfir allri umferð á landinu okkar, annarri en gangandi.

En skvettum þá skítnum til baka. Efst í toppi Úlfarsfells er slóði sem ekin hefur verið áratugum saman. Samt þurfti göngufólk að leggja nýjan slóða upp á kollinn og er þar ljótt sár í fjallinu. Ætli það hafi verið umhverfisfasisti sem átti fyrstu sporin í þeim stíg?

Finnst einhverjum gönguslóðinn/slóðarnir í Esjunni fallegir úr fjarska? En sér einhver bílslóðina upp í mitt fjallið?

Ekki misskilja mig - utanvegaakstur á einungis rétt á sér í neyðartilfellum eins og stendur í lögum. Það er einfaldlega ömurlegt þegar mótorhjólamenn/konur, fjórhjólamenn/konur, jeppakarlar/kerlingar OG göngumenn/konur leggja nýja slóða við hlið annarra án þess að nokkur þörf sé á.

Ég mæli með því að blaðamenn/konur reimi á sig góða skó, skottist uppí hlíðar Úlfarsfells og skoði ummerki eftir alla ofangreinda aðila. Þar mun margt koma á óvart.

Fáir eru duglegri en hestamenn að leggja nýja slóða nema ef vera skyldi göngufólk. Allir aðrir eru sjálfkrafa glæpamenn ef þeir leggja slóða. Og ef einhver notar slóðann annar en hestamaður eða göngumaður þá er allt í voða. Ég hef stundum tekið mér í munn orð Ólafs Ketilssonar heitins, þegar kvartað hefur verið við mig að ég sé að þvælast "ólöglega" eftir einhverjum stíg á hjólinu mínu: Ef þú átt stíginn þá skaltu taka hann og fara með hann.

Eitt dæmi um gönguslóða sem viljandi var lagður um ósnortna hlíð, er í norðvesturhorni Helgafells í Mosfellsbæ. Ágætur gönguslóði var í suðvesturhorni fellsins. Einn góðan veðurdag var búið að stika út nýjan slóða og öllum beint að honum. Af hverju? Og hver bað um þetta og hver gaf leyfi? Fór þetta í umhverfismat?

Á www.mos.is er ekki getið um ábyrgðarmann eða upphafsmann á þessari makalausu frétt og myndbirtingu. Hver í ósköpunum er ábyrgur fyrir þessu? Og hver kvartaði og undan hverjum?

Allt og sumt sem ég er að reyna að segja er: Við eigum landið saman. Og nýtum það saman. Hvort sem við finnum hugarró við göngu, mótorhjólaakstur eða jeppaskakstur þá hljótum við öll að eiga sama rétt í tilverunni. Og gleymum ekki því, að ekki eru allir með lappir í lagi og geta þess vegna ekki notið ýmissa staða á landinu nema með aðstoð vélfáksins.

Sigurður Grímsson.

 

 
Viðburðadagatal
September 2010
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti

Heyrst hefur...

... að nú sé þögn í sleðheimum. Menn drjúpi höfði, harmi slegnir, á hinsta degi höfðingja.

... að tveir úrbræddir Polaris fljóti heldur ekki.

... að úrbræddur Polaris fljóti bara alls ekki.

... að standard dúdú hafi bakað M8 túrbó í spyrnu. Emmáttan er í Góða hirðinum en það hefur enginn spurt um hana ennþá....

... að Arctic Cat afinn hafi prjónað NIÐUR brekku á 1200 kisunni!!

... að hér sé alvöru Ford. Og alvöru Dodge. Og grey Patrol.

... að nú hljóti menn að fatta að stuttir sleðar eiga ekki heima á fjöllum.

... að nú sé gengið Yammalaust. Sniff.

... að það hafi verið 1200 kitt í þúsundkallinum sem tapaði spyrnunni fyrir 600 Rush sleðanum á Akureyri.

... að Chris Burandt sé búinn að keyra RMK-PRO og hann hafi brosað tvo hringi í kringum hnöttinn !

... að Hvizz-Bang hafi fengið inside upplýsingar hjá Burandt um 2011 Pollann og þær lofi góðu !!!

... að Polaris hafi loks gefist upp. Þeir keyptu SwissAuto til að fá, sko, hérna, aðgang að evrópskum mörkuðum.

... að Kolla hans Sigga Andrésar muni beita sér af krafti fyrir gerð vélsleðastíga í Mosó sem verði með innbyggðum snjóframleiðslutækjum.

... að Halli Sverris hafi sigrað í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Mosó með fáheyrðum yfirburðum.

... að Yammakallinn í genginu sé búinn að kaupa Arctic Cat turbo.

... að nú æsist leikar. Yamaha kemur með V8 í Apex sleðann árið 2011. Hvað gerir Ægir nú?

... að Assault hafi sést á Mýrdalsjökli. Dráttarsleði fór með til öryggis.

... að myndin 2012 sé ofmetin.

... að menn sem spóli á bílum séu tjéllingar.

... að what goes around comes around.

... að einhver óviti haldi því fram að sleðar séu ódýrari á Íslandi en í Noregi. Hann bara gleymdi að menn hafa tvöfalt hærra kaup í Noregi en á Íslandi - moron.

... að nú mæti allir á jólafund LÍV-Reykjavík !!! Rikki rokkar.

... að Hjálmtýr hafi keypt Polaris RMK 900 hundraðfimmtíuogníutommur árgerð 1985. Eða 1995. Eða 2005.

... að Hjálmtýr sé búinn að kaupa Pol... - nei þetta er bara of sorglegt.

... að vor stórkostlega lýðræðiselskandi forseti hafi skrifað undir.

... að Hjálmtýr sé búinn að kaupa - nei það er ekki hægt að segja frá þessu.

... að eitthvað sé undarlegt að gerast með Arctic Cat umboðið?

... að Arctic Trucks sé búið að gera nýja Yamahavefsíðu.

... að hér sé ný sleðasíða.

... að Grímur og Steinar fái ekki einu sinni leirdúfur í matinn...

... að ekki sé hægt að skjóta rjúpu á 600 metra færi með haglabyssu.

... að rjúpurnar við Skjaldbreið séu enn með magaverk af hlátri.

... að Elvar hafi ekkert breyst!! Sjúkk.

... að NoRisk-NoFun Winter Kick-off verði viðburður ársins í láglendissleðamennsku. Árshátíð hvað!!

... að það sé ekkert svo erfitt að fá Nóbelinn í dag...

... að Elvar hafi breyst í venjulegan mann! Hann vill núna skipta á vélsleða konunnar fyrir Toyota eða Patrol !!! Heimsendir hlýtur að vera í nánd...

... að þetta sé bara ekki í lagi !!!

... að Hjálmtýr sé að komast á rétta hillu í lífinu. Kominn á Yamaha krossara, kallinn! Næst er það sleðinn...

... að Hlynur sé kominn í S&M klúbbinn. Hann á bæði Patrol og Polaris og er ánægður með báða!!

... að Patrol og Polaris eigi vél saman.

... að það hafi verið Ski-doo Mach Z 1000 sem sigraði drottingu íslenskra fjalla.

... að nýja Polarislagið heiti: You always walk alone - on Mosfellsheiði.

... að gamla metið - tveir mótorar á eina reim - sé fallið!!!

... að nýja metið sé ÞRÍR mótorar á eina reim - takk.

... að Stormsveitin hafi skroppið í Ljósufjöll.

... að TurboYammar hafi verið saltaðir um helgina. Hvað segir Þór Kjartans núna?

... að kisi Littli sé týndur og hafi sést seinast inn við Laufafell að Fjallbaki.

... að kisi Litli hafi einn og óstuddur hlaupið burt frá eigandanum !!

... að nú sé kisa Litla orðið kalt, hann orðinn einmanna og eigandinn sé enn að leita að honum.

... að það sé bara gaman á nóttunni á Slysó.

... að nú hafi Yömmunum fækkað um 100% í genginu.

... að Yamminn hafi tekið með sér eina kisu, einn kúk (Poo) og vænan slatta af sjálfsáliti í fallinu.

... að Landmannalaugaferðin hafi ekki gengið neitt alltof vel hjá "hetjunum okkar" í gær...

... að björgunarsveitir hafi fengið útkall í nótt vegna drukkins blámanns sem að var fastur í snjóskafli rétt fyrir utan Hrauneyjar...

... að á Hrollur.is sé flott minningarmyndband um Gunnar Williamsson.

... að 2009 polaris sleðarnir séu komnir til landsins.

... að húsið hans Elvars hafi farið verst útúr helginni...

... að lögreglan leiti nú að þessum hérna manni...

... að þeir sem að hafi upplýsingar um staðsetningu ofangreinds aðila séu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Elvar...

... að Elvar sé að leita sér að Volvo 240 GL (helst bláum) fyrir mannaveiðar...

... að Ski - Doo menn séu ekki vel séðir eftir helgina...

... að ski-doo hafi yfirbugað litlu polaris strákana

... að Arcticat mennirnir hafi farið heim grátandi úr partyinu hjá gústa

... að 2010 Lynx komi ..... ekki. Eini kaupandinn er kominn á kisu.

... að 2010 Arctic Cat M8 komi með turbo og þriggja kílómetra ábyrgð.

... að 2010 Yamaha Nytro verði með bíííííbrger orginal!! Mikið var!

... að Bent sé mjöööög ánægður með, hérna sko, endingu á, hérna sko, skónum sínum....

... að mótorinn hjá Gasman sé farinn!

... að Polaris fái ekki verðlaun í ár fyrir áreiðanlegustu mótorana.