Aðalsíða
Veðurstofa Íslands
Kirkjubæjarkl. : 0°C
Fagurhólsm. : 0°C
Reykjavík : 0°C
Skálafell : 0°C
Aku. Krossnbr. : 0°C
Þingvellir : 0°C
Hveravellir : 0°C
Fagurhólsmýri : 0°C
Rauðinúpur : 0°C
Egilsstaðir : 0°C
Bláfjallaskáli : 0°C
Hjarðarland : 0°C
Ólafsfjörður : 0°C
Kbæjkl. Stjórnars. : 0°C
Vegagerðin
Kjalarnes 01:40 ASA 7  14 °C
Hafnarfjall 01:30 ASA 7  16 °C
Holtavörðuh. 01:40 NNV 6  9 °C
Ennisháls 01:40 NV 4  9 °C
Steingr.fj.heiði 01:40 ANA 5  9 °C
Blönduós 01:40 A 3  10 °C
Vatnsskarð 01:30 NA 2  10 °C
Öxnadalsheiði 01:40 A 3  8 °C
Víkurskarð 01:40 ASA 6  11 °C
Mývatnsöræfi 01:30 SSA 8  10 °C
Fjarðarheiði 01:40 A 8  8 °C
Hvalnes 01:40 N 6  10 °C
Öræfasveit 01:30 NNA 2  14 °C
Við Lómagnúp 01:40 ASA 12  12 °C
Mýrdalssandur 01:40 ANA 9  12 °C
Skálholt 01:30 ANA 5  13 °C
Búrfell 01:00 VNV 15  13 °C
Setur 01:00 S 2  9 °C
Veiðivatnahr. 01:00 ASA 1  9 °C
Jökulheimar 01:00 SSA 9  8 °C
Ingólfsfjall 01:40 ASA 4  13 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland

Smellið á landshluta til að sjá færð og veður.

 

Ski-doo ferðin 2010.

Kæru Skidoo og Lynx eigendur  ( opið fyrir aðra ) 

 

Eins og alþjóð veit tók Ellingsen yfir Skidoo umboðið á vormánuðum 2009 og fylgdu því auðvitað gamlar hefðir. Frá 1993 hafa Ski Doo eigendur fjölmennt á Vatnajökul í lok maí og mun Ellingsen að sjálfsögðu halda þá hefð í heiðri og auðvitað bjóða Lynx litla bróður með.

Eins og undanfarin ár varð uppstigningardagur fyrir valinu og munum við fjölmenna austur dagana 13-15 maí. Gerum við ráð fyrir að keyra dagstúra á jöklinum og koma til baka í Jöklasel fyrir kvöldmat báða dagana. Eins verður boðið upp á stutta dagstúra laugardaginn 15 ef veður leyfir. Þar sem brottför er fyrirhuguð kl. 09:00 á fimmtudeginum mælum við með að menn keyri austur á miðvikudagskvöldi.

 Að sjálfsögðu verða ýmis skemmtiatriði í boði fyrir þreytta ferðalanga m.a. samhliðabraut og spyrnukeppni en heyrst hefur að Stálmúsin frá Egilsstöðum hafi notað veturinn til að skrúfa og mæti tvíefldur til varnar titlinum frá því í fyrra.

Að vanda verða tveir gistimöguleikar í boði. Annars vegar Bændahótelið að Smyrlabjörgum og kostar gistinóttin þar 5000 kr með morgunmat í tveggjamanna herbergjum, hins vegar er hægt að gista í svefnpokaplássi í Jöklaseli og er gistingin þar með morgunmat 2900 kr.

Að kvöldi uppstigningardags sláum við svo upp veislu og verðlaunaafhendingu þegar úrslit liggja fyrir og skemmtum okkur saman fram eftir kvöldi en heyrst hefur að strákarnir á verkstæðinu séu með eitthvað óvænt í pokahorninu. Gjaldið fyrir 3ja rétta máltíð er 4800kr pr.mann. Að auki fá þeir sem skrá sig 3000kr gjafabréf í Ellingsen.

Nauðsynlegt er að skrá sig sem fyrst enda hefur ásókn í ferðina ávallt verið góð og takmarkað gistipláss í boði. Bensín verður selt á staðnum eins og áður en nauðsynlegt er að hafa með sér c.a 40 lítra auka yfir daginn.

Skráning fer fram í síma 580-8509 og í tölvupósti arnarm@ellingsen.is

Þeir sem ætla að gista á Smyrlabjörgum þurfa að bóka gistingu hjá Laufeyju í síma 478-1074.

En starfsmenn Ellingsen munu bóka gistingu í Jöklaseli.

 

Sleðakveðjur

Starfsfólk Ellingsen 

 
Viðburðadagatal
September 2010
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
FyrriNúnaNæsti

Heyrst hefur...

... að nú sé þögn í sleðheimum. Menn drjúpi höfði, harmi slegnir, á hinsta degi höfðingja.

... að tveir úrbræddir Polaris fljóti heldur ekki.

... að úrbræddur Polaris fljóti bara alls ekki.

... að standard dúdú hafi bakað M8 túrbó í spyrnu. Emmáttan er í Góða hirðinum en það hefur enginn spurt um hana ennþá....

... að Arctic Cat afinn hafi prjónað NIÐUR brekku á 1200 kisunni!!

... að hér sé alvöru Ford. Og alvöru Dodge. Og grey Patrol.

... að nú hljóti menn að fatta að stuttir sleðar eiga ekki heima á fjöllum.

... að nú sé gengið Yammalaust. Sniff.

... að það hafi verið 1200 kitt í þúsundkallinum sem tapaði spyrnunni fyrir 600 Rush sleðanum á Akureyri.

... að Chris Burandt sé búinn að keyra RMK-PRO og hann hafi brosað tvo hringi í kringum hnöttinn !

... að Hvizz-Bang hafi fengið inside upplýsingar hjá Burandt um 2011 Pollann og þær lofi góðu !!!

... að Polaris hafi loks gefist upp. Þeir keyptu SwissAuto til að fá, sko, hérna, aðgang að evrópskum mörkuðum.

... að Kolla hans Sigga Andrésar muni beita sér af krafti fyrir gerð vélsleðastíga í Mosó sem verði með innbyggðum snjóframleiðslutækjum.

... að Halli Sverris hafi sigrað í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Mosó með fáheyrðum yfirburðum.

... að Yammakallinn í genginu sé búinn að kaupa Arctic Cat turbo.

... að nú æsist leikar. Yamaha kemur með V8 í Apex sleðann árið 2011. Hvað gerir Ægir nú?

... að Assault hafi sést á Mýrdalsjökli. Dráttarsleði fór með til öryggis.

... að myndin 2012 sé ofmetin.

... að menn sem spóli á bílum séu tjéllingar.

... að what goes around comes around.

... að einhver óviti haldi því fram að sleðar séu ódýrari á Íslandi en í Noregi. Hann bara gleymdi að menn hafa tvöfalt hærra kaup í Noregi en á Íslandi - moron.

... að nú mæti allir á jólafund LÍV-Reykjavík !!! Rikki rokkar.

... að Hjálmtýr hafi keypt Polaris RMK 900 hundraðfimmtíuogníutommur árgerð 1985. Eða 1995. Eða 2005.

... að Hjálmtýr sé búinn að kaupa Pol... - nei þetta er bara of sorglegt.

... að vor stórkostlega lýðræðiselskandi forseti hafi skrifað undir.

... að Hjálmtýr sé búinn að kaupa - nei það er ekki hægt að segja frá þessu.

... að eitthvað sé undarlegt að gerast með Arctic Cat umboðið?

... að Arctic Trucks sé búið að gera nýja Yamahavefsíðu.

... að hér sé ný sleðasíða.

... að Grímur og Steinar fái ekki einu sinni leirdúfur í matinn...

... að ekki sé hægt að skjóta rjúpu á 600 metra færi með haglabyssu.

... að rjúpurnar við Skjaldbreið séu enn með magaverk af hlátri.

... að Elvar hafi ekkert breyst!! Sjúkk.

... að NoRisk-NoFun Winter Kick-off verði viðburður ársins í láglendissleðamennsku. Árshátíð hvað!!

... að það sé ekkert svo erfitt að fá Nóbelinn í dag...

... að Elvar hafi breyst í venjulegan mann! Hann vill núna skipta á vélsleða konunnar fyrir Toyota eða Patrol !!! Heimsendir hlýtur að vera í nánd...

... að þetta sé bara ekki í lagi !!!

... að Hjálmtýr sé að komast á rétta hillu í lífinu. Kominn á Yamaha krossara, kallinn! Næst er það sleðinn...

... að Hlynur sé kominn í S&M klúbbinn. Hann á bæði Patrol og Polaris og er ánægður með báða!!

... að Patrol og Polaris eigi vél saman.

... að það hafi verið Ski-doo Mach Z 1000 sem sigraði drottingu íslenskra fjalla.

... að nýja Polarislagið heiti: You always walk alone - on Mosfellsheiði.

... að gamla metið - tveir mótorar á eina reim - sé fallið!!!

... að nýja metið sé ÞRÍR mótorar á eina reim - takk.

... að Stormsveitin hafi skroppið í Ljósufjöll.

... að TurboYammar hafi verið saltaðir um helgina. Hvað segir Þór Kjartans núna?

... að kisi Littli sé týndur og hafi sést seinast inn við Laufafell að Fjallbaki.

... að kisi Litli hafi einn og óstuddur hlaupið burt frá eigandanum !!

... að nú sé kisa Litla orðið kalt, hann orðinn einmanna og eigandinn sé enn að leita að honum.

... að það sé bara gaman á nóttunni á Slysó.

... að nú hafi Yömmunum fækkað um 100% í genginu.

... að Yamminn hafi tekið með sér eina kisu, einn kúk (Poo) og vænan slatta af sjálfsáliti í fallinu.

... að Landmannalaugaferðin hafi ekki gengið neitt alltof vel hjá "hetjunum okkar" í gær...

... að björgunarsveitir hafi fengið útkall í nótt vegna drukkins blámanns sem að var fastur í snjóskafli rétt fyrir utan Hrauneyjar...

... að á Hrollur.is sé flott minningarmyndband um Gunnar Williamsson.

... að 2009 polaris sleðarnir séu komnir til landsins.

... að húsið hans Elvars hafi farið verst útúr helginni...

... að lögreglan leiti nú að þessum hérna manni...

... að þeir sem að hafi upplýsingar um staðsetningu ofangreinds aðila séu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Elvar...

... að Elvar sé að leita sér að Volvo 240 GL (helst bláum) fyrir mannaveiðar...

... að Ski - Doo menn séu ekki vel séðir eftir helgina...

... að ski-doo hafi yfirbugað litlu polaris strákana

... að Arcticat mennirnir hafi farið heim grátandi úr partyinu hjá gústa

... að 2010 Lynx komi ..... ekki. Eini kaupandinn er kominn á kisu.

... að 2010 Arctic Cat M8 komi með turbo og þriggja kílómetra ábyrgð.

... að 2010 Yamaha Nytro verði með bíííííbrger orginal!! Mikið var!

... að Bent sé mjöööög ánægður með, hérna sko, endingu á, hérna sko, skónum sínum....

... að mótorinn hjá Gasman sé farinn!

... að Polaris fái ekki verðlaun í ár fyrir áreiðanlegustu mótorana.