Ekki er úr vegi að kynna meðlimi. Gengið skiptist í órólegu deildina og heldri manna deild.
Órólega deildin.
Þar skal fremstan telja meðal jafninga Elvar Örn Ægisson sem er ruglukollur hinn besti og ber eiginlega ábyrgðina á að þessi síða varð að veruleika. Hans mottó er: Stór slaghamar, slípirokkur, rafsuða og skortur á skynsemi, er allt sem þarf!!
Gústi heitir Ágúst Jóhannsson og er einn af hörðustu sleðamönnunum í genginu. Það var snemma ljóst að hann og Elvar yrðu vinir enda svipað mótorgen í þeim báðum.
Bragi á herþotu fyrir sleða. Maður gæti haldið að hann æki alltaf með afturbrennarann á - en nei nei. Þetta er bara grjótstandard F7 með flottri grafík og á sumardekki. Hvernig stendur á að hann kemst allt og fer alltaf hæst? 50mm belti hvað....
Siggi Palli, Loftur, Benni, Danni, Baldur, Steinar, Grímur
Heldri manna deildin.
Ægir, Siggi, Unnar, Konni, Raggi, Stefán sjóari.
Hjálmtýr Unnar Guðmundsson. Hann er minnst 5 manna maki og í sérdeild gengisins. Enginn er jafnsannfærður um ágæti sleðans síns. Sem auðvitað er stuttur, aðeins 166 tommur. Hans mottó er: ef stutt er gott þá er langt best.