Aðalsíða
Veðurstofa Íslands
Kirkjubæjarkl. : 0°C
Fagurhólsm. : 0°C
Reykjavík : 0°C
Skálafell : 0°C
Aku. Krossnbr. : 0°C
Þingvellir : 0°C
Hveravellir : 0°C
Fagurhólsmýri : 0°C
Rauðinúpur : 0°C
Egilsstaðir : 0°C
Bláfjallaskáli : 0°C
Hjarðarland : 0°C
Ólafsfjörður : 0°C
Kbæjkl. Stjórnars. : 0°C
Vegagerðin
Kjalarnes 01:20 A 9  14 °C
Hafnarfjall 01:20 ASA 6  16 °C
Holtavörðuh. 01:30 NNV 5  9 °C
Ennisháls 01:20 NNV 3  9 °C
Steingr.fj.heiði 01:20 A 5  9 °C
Blönduós 01:20 ASA 3  10 °C
Vatnsskarð 01:20 NA 3  10 °C
Öxnadalsheiði 01:20 A 3  9 °C
Víkurskarð 01:20 SA 7  11 °C
Mývatnsöræfi 01:30 SSA 8  10 °C
Fjarðarheiði 01:30 A 9  8 °C
Hvalnes 01:20 N 7  10 °C
Öræfasveit 01:20 NV 2  14 °C
Við Lómagnúp 01:20 ASA 11  12 °C
Mýrdalssandur 01:30 A 9  12 °C
Skálholt 01:20 ANA 5  13 °C
Búrfell 01:00 VNV 15  13 °C
Setur 01:00 S 2  9 °C
Veiðivatnahr. 01:00 ASA 1  9 °C
Jökulheimar 01:00 SSA 9  8 °C
Ingólfsfjall 01:20 A 5  13 °C
VegagerðinVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland

Smellið á landshluta til að sjá færð og veður.

Heimasíða No Risk - No Fun gengisins.

Verið velkomin - það sakar ekki að hafa áhuga á jeppum, vélsleðum og mótorsporti, við skoðun þessarar síðu. Vefstjóri og ábyrgðarmaður síðunnar er Sigurður Grímsson. Vinsamlegast hafið samband við norisknofun@norisknofun.is ef þér viljið koma á framfæri athugasemdum.

Meira en 50 ára gamall slóði upp hlíðar Æsustaðafells.
Meira en 50 ára gamall slóði upp hlíðar Æsustaðafells.

Nú er nóg komið !!!

Það er í lagi að "skemma" með fótunum en ekki með dekkjum.

Hverjir eiga landið? Ég eða þú? Er nokkur möguleiki á að við eigum það saman?
» meira

Lokun hálendisleiða.

Ruglið ríður ekki við einteyming.

Eru ekki allir jafnir fyrir lögum á Íslandi? Eru menn búnir gleyma Stjórnarskránni sem við börðumst fyrir hér á árum áður?
» meira

Ski-doo ferðin 2010.

» meira
Ef ég ætti að giska - Óli Kr. og Ívar ??
Ef ég ætti að giska - Óli Kr. og Ívar ??

Mosfellingar í hremmingum á Siglufirði !

Ekki bara Doo Doo sem sekkur ...

Myndir fengnar að láni frá siglo.is - algjörlega án leyfis. Biðst afsökunar.
» meira
Það þarf að smella tvisvar á myndina til að hún stækki almennilega.
Það þarf að smella tvisvar á myndina til að hún stækki almennilega.

Nýji Ski-Doo 800 E-tec DYNO tölur !!!

Jæja - ég bara varð. Samt löngu hættur.

Nú eru komnar hestafla- og togtölur yfir nýja Ski-Doo E-Tec mótorinn. Þeir stóðu við það sem þeir sögðu - að þessi mótor myndi að minnsta kosti jafna það besta á markaðnum sem þá var Arctic Cat 800.

Í stuttu máli þá er hann 163.9 hestöfl á 8000 snúningum og 107.6 fetpund í togi. Athygli vekur að á aðeins 6400 snúningum er mótorinn að skila 100.5 hestöflum og 82.5 fetpundum. Fjórgengis hvað !!

Til samanburðar er F8 800 árg 2010 að skila 163.4 hestöflum á 8200 snúningum og 104.6 fetpundum. Hámarkstog er á 7900 snúningum, 106.0 fetpund. Og F1000 er að skila 163.9 hestöflum og 120.3 fetpundum.

Ef auglýstar eyðslutölur, bæði hvað varðar bensín og tvígengisolíu, standast, þá er fundinn sigurvegari í þessu kapphlaupi. Sorry Suzuki.

» meira
Hvanngil.
Hvanngil.

Fréttir af snjóalögum helgina 13. og 14. mars.

Landmannalaugar á jeppum og Hvanngil á sleðum.

Órólega deildin skrapp í Laugarnar og Bent í Hvanngil.
» meira
Á svartakafi !!
Á svartakafi !!

Órólega deildin á Nesjavallaleið, sunnudaginn 7. mars 2010.

Þeir órólegu skruppu Nesjavallaleið í dag. Fullt af snjó og krapatjarnir til að sigla á og allt að gerast. Elvar búinn að pakka Polarismerktum spotta og tilbúinn í viðgerðir. En Pollinn stóð sig en Skiddinn þurfti drátt. Það er löngu vitað að ekki er hægt að sigla á dúdú en rétt þótti að prófa einu sinni enn. Og auðvitað sökk allt á svartakaf.

Sem betur fór hafði Steinar farið á puttanum til að horfa á aðfarirnar og var á 38 tommu Patrol þarna rétt hjá. Og gott ef tveir skátar voru ekki nærstaddir til að passa uppá hnútana þannig að Skiddinn komst á þurrt.

Góðu fréttirnar voru þær að nógur snjór var á svæðinu og það moksnjóaði á þá allan tímann.

Myndir komnar - kíkið á Myndir og Elvar og farið neðst í albúmið.

 

» meira

Þjónustuverkstæði Ellingsen býður í heimsókn.

Halldór Jóhannesson sendi þetta:

Nú erum við tilbúnir að mestu með verkstæðið okkar og varahlutina og langar af því tilefni að bjóða viðskiptavinum að koma í kaffi og kleinur á fimmtudaginn 4. mars frá kl 15-20 og fá ráðgjöf hjá okkur og sjá nýju aðstöðuna okkar. Einnig verðum við með 20% afslátt af nýjum beltum og grínverð á uppítökubeltum 9.900  -19.900 kr.

Þjónustuverkstæði Ellingsen er að Vatnagörðum 12.

» meira
Revelstoke fílingur.
Revelstoke fílingur.

Fréttir af snjóalögum.

Sleðaflokkur Kyndils við Bragabót.

Elvar, Steinar og co á leið í Veiðivötn. ATH KOMNAR MYNDIR - SJÁ Myndir og Elvar Örn.
» meira
2011 RMK-PRO.
2011 RMK-PRO.

Nýr Polaris RMK, PRO-RMK er 40 pundum léttari !!!!

Uppgefin þurrvikt er 431 pund takk fyrir.

Frá 1997 hefur RMK selst í meira en 150 þúsund eintökum. Uppfærsla kl. 21:36 frá Hjálmtý.
» meira
 
Viðburðadagatal
Ágúst 2010
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930311234
FyrriNúnaNæsti

Heyrst hefur...

... að nú sé þögn í sleðheimum. Menn drjúpi höfði, harmi slegnir, á hinsta degi höfðingja.

... að tveir úrbræddir Polaris fljóti heldur ekki.

... að úrbræddur Polaris fljóti bara alls ekki.

... að standard dúdú hafi bakað M8 túrbó í spyrnu. Emmáttan er í Góða hirðinum en það hefur enginn spurt um hana ennþá....

... að Arctic Cat afinn hafi prjónað NIÐUR brekku á 1200 kisunni!!

... að hér sé alvöru Ford. Og alvöru Dodge. Og grey Patrol.

... að nú hljóti menn að fatta að stuttir sleðar eiga ekki heima á fjöllum.

... að nú sé gengið Yammalaust. Sniff.

... að það hafi verið 1200 kitt í þúsundkallinum sem tapaði spyrnunni fyrir 600 Rush sleðanum á Akureyri.

... að Chris Burandt sé búinn að keyra RMK-PRO og hann hafi brosað tvo hringi í kringum hnöttinn !

... að Hvizz-Bang hafi fengið inside upplýsingar hjá Burandt um 2011 Pollann og þær lofi góðu !!!

... að Polaris hafi loks gefist upp. Þeir keyptu SwissAuto til að fá, sko, hérna, aðgang að evrópskum mörkuðum.

... að Kolla hans Sigga Andrésar muni beita sér af krafti fyrir gerð vélsleðastíga í Mosó sem verði með innbyggðum snjóframleiðslutækjum.

... að Halli Sverris hafi sigrað í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Mosó með fáheyrðum yfirburðum.

... að Yammakallinn í genginu sé búinn að kaupa Arctic Cat turbo.

... að nú æsist leikar. Yamaha kemur með V8 í Apex sleðann árið 2011. Hvað gerir Ægir nú?

... að Assault hafi sést á Mýrdalsjökli. Dráttarsleði fór með til öryggis.

... að myndin 2012 sé ofmetin.

... að menn sem spóli á bílum séu tjéllingar.

... að what goes around comes around.

... að einhver óviti haldi því fram að sleðar séu ódýrari á Íslandi en í Noregi. Hann bara gleymdi að menn hafa tvöfalt hærra kaup í Noregi en á Íslandi - moron.

... að nú mæti allir á jólafund LÍV-Reykjavík !!! Rikki rokkar.

... að Hjálmtýr hafi keypt Polaris RMK 900 hundraðfimmtíuogníutommur árgerð 1985. Eða 1995. Eða 2005.

... að Hjálmtýr sé búinn að kaupa Pol... - nei þetta er bara of sorglegt.

... að vor stórkostlega lýðræðiselskandi forseti hafi skrifað undir.

... að Hjálmtýr sé búinn að kaupa - nei það er ekki hægt að segja frá þessu.

... að eitthvað sé undarlegt að gerast með Arctic Cat umboðið?

... að Arctic Trucks sé búið að gera nýja Yamahavefsíðu.

... að hér sé ný sleðasíða.

... að Grímur og Steinar fái ekki einu sinni leirdúfur í matinn...

... að ekki sé hægt að skjóta rjúpu á 600 metra færi með haglabyssu.

... að rjúpurnar við Skjaldbreið séu enn með magaverk af hlátri.

... að Elvar hafi ekkert breyst!! Sjúkk.

... að NoRisk-NoFun Winter Kick-off verði viðburður ársins í láglendissleðamennsku. Árshátíð hvað!!

... að það sé ekkert svo erfitt að fá Nóbelinn í dag...

... að Elvar hafi breyst í venjulegan mann! Hann vill núna skipta á vélsleða konunnar fyrir Toyota eða Patrol !!! Heimsendir hlýtur að vera í nánd...

... að þetta sé bara ekki í lagi !!!

... að Hjálmtýr sé að komast á rétta hillu í lífinu. Kominn á Yamaha krossara, kallinn! Næst er það sleðinn...

... að Hlynur sé kominn í S&M klúbbinn. Hann á bæði Patrol og Polaris og er ánægður með báða!!

... að Patrol og Polaris eigi vél saman.

... að það hafi verið Ski-doo Mach Z 1000 sem sigraði drottingu íslenskra fjalla.

... að nýja Polarislagið heiti: You always walk alone - on Mosfellsheiði.

... að gamla metið - tveir mótorar á eina reim - sé fallið!!!

... að nýja metið sé ÞRÍR mótorar á eina reim - takk.

... að Stormsveitin hafi skroppið í Ljósufjöll.

... að TurboYammar hafi verið saltaðir um helgina. Hvað segir Þór Kjartans núna?

... að kisi Littli sé týndur og hafi sést seinast inn við Laufafell að Fjallbaki.

... að kisi Litli hafi einn og óstuddur hlaupið burt frá eigandanum !!

... að nú sé kisa Litla orðið kalt, hann orðinn einmanna og eigandinn sé enn að leita að honum.

... að það sé bara gaman á nóttunni á Slysó.

... að nú hafi Yömmunum fækkað um 100% í genginu.

... að Yamminn hafi tekið með sér eina kisu, einn kúk (Poo) og vænan slatta af sjálfsáliti í fallinu.

... að Landmannalaugaferðin hafi ekki gengið neitt alltof vel hjá "hetjunum okkar" í gær...

... að björgunarsveitir hafi fengið útkall í nótt vegna drukkins blámanns sem að var fastur í snjóskafli rétt fyrir utan Hrauneyjar...

... að á Hrollur.is sé flott minningarmyndband um Gunnar Williamsson.

... að 2009 polaris sleðarnir séu komnir til landsins.

... að húsið hans Elvars hafi farið verst útúr helginni...

... að lögreglan leiti nú að þessum hérna manni...

... að þeir sem að hafi upplýsingar um staðsetningu ofangreinds aðila séu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Elvar...

... að Elvar sé að leita sér að Volvo 240 GL (helst bláum) fyrir mannaveiðar...

... að Ski - Doo menn séu ekki vel séðir eftir helgina...

... að ski-doo hafi yfirbugað litlu polaris strákana

... að Arcticat mennirnir hafi farið heim grátandi úr partyinu hjá gústa

... að 2010 Lynx komi ..... ekki. Eini kaupandinn er kominn á kisu.

... að 2010 Arctic Cat M8 komi með turbo og þriggja kílómetra ábyrgð.

... að 2010 Yamaha Nytro verði með bíííííbrger orginal!! Mikið var!

... að Bent sé mjöööög ánægður með, hérna sko, endingu á, hérna sko, skónum sínum....

... að mótorinn hjá Gasman sé farinn!

... að Polaris fái ekki verðlaun í ár fyrir áreiðanlegustu mótorana.